gemill

Guðjón Emilsson heiti ég. Nemi i Kaupmannahofn.

þriðjudagur, júlí 29, 2008

Eggin í Ródesíu...

sem nú eru þekkt sem eggin í óðaverðbólguríkinu Zimbabve kosta nú 35 milljarða Zimbabve dali stykkið skv. frétt á mbl.is í dag. Einhvers staðar las ég að þetta þætti nú mikið fyrir eitt hænuegg.

Sá mælikvarði sem oft er nefndur til að bera saman verð milli landa er raungengismælikvarðinn, sem eflaust getur verið erfitt að skilja, þar sem hann hefur enga mælieiningu en hann segir okkur hversu dýrari/ódýrari ákveðin vara er í viðmiðunarlandi. Út af því að ég fékk loksins í hendurnar algenga vörutegund sem ég get borið saman við sömu tegund hér á landi (þ.e.a.s. egg), þá langaði mig að gamni að athuga hvort 35 ma. ZWD séu í raun mikið fyrir eitt egg.

Úr Bónus fékk ég verðið 459 krónur á bakka með 10 eggjum (að vísu brúnum eggjum). Það gerir 46 krónur á eitt stykki egg í Bónus. Til að reikna út raungengið vantar mig því aðeins eitt til viðbótar, gengiskrossinn ISKZWD sem ég fékk á http://www.oanda.com/ í dag:

1 Iceland Krona (ISK) = 654,298,219 Zimbabwe Dollar (ZWD)

Þá er bara að reikna þetta með raungengisjöfnu sem miðar við verðlag: RER=P*/EP
þar sem RER er raungengi, P*er verð á eggi í Zimbabve, P er verð á eggi í Bónus og E er gengi á milli gjaldmiðlanna tveggja.

RER = ZWD 35.000.000.000/(654.298.219 ZWD/ISK x ISK 46) = 1,16287 !!!

Þetta staðfestir ekki þær vangaveltur að eitt hænuegg sé mjög dýrt í Zimbabve. Því ef eggin ættu að vera jafndýr milli landa þyrfti RER=1 en eitt egg í Zimbabve er s.s. ekki nema 16,29% dýrara en hér á landi!!! Það er ljóst að gengi Zimbabveísks dals veikist talsvert á móti verðbólgunni í Zimbabve. Kaupmáttur fólks vegna kaupa á eggjum er því greinilega ekki nema 16,29% lakari en hér á landi. Langaði bara að reyna að öðlast smá skilning á óðaverðbólgu því eggið í Zimbabve verður vafalaust orðið eitthvað dýrara á morgun en þó að við séum með litla verðbólgu hér á Íslandi miðað við þetta (13,6%), þá þarf greinilega ekki mikið til að viðskiptakjör okkar gagnvart Zimbabve versni!!!

3 Ummæli:

  • Þann 12:59 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Áhugaverðar pælingar!

    Er það annars rétt skilið hjá mér að eggið í Zimbawe kostar 1495 ISK?

     
  • Þann 9:50 f.h. , Blogger gemill sagði...

    Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.

     
  • Þann 10:10 f.h. , Blogger gemill sagði...

    Já, þetta eru áhugaverðar pælingar. Það er reyndar eins gott að þú kommentaðir því mér urðu greinilega á mistök þar sem ég gerði tvennt rangt.

    Í fyrsta lagi talaði ég um 35 ma. ZWD en reiknaði óvart með 45.

    Í öðru lagi var talað um milljarða en ég bætti óvart við 3 núllum of mikið sem gerir þetta að trilljörðum.

    Ég breytti því færslunni og þá kemur sláandi niðurstaða fyrir Ísland, því eggið er ekki nema rúmum 16% dýrara í Zimbabve og kostar það því ekki nema:
    35.000.000.000 ZWD / 654.298.219 ZWD/ISK = 53,49 krónur. Ekki svo mikið dýrara en hér á landi.

    Þar með eru hin leiðu mistök leiðrétt.

     

Skrifa ummæli

<< Heim