Jæja, nú er liðinn of langur tími síðan ég bloggaði síðast. Margt og mikið hefur gerst á þeim tíma. Gott og miður gott eins og gengur. Sumarið byrjaði á því að ungur hagfræðingur gekk út í lífið fullur bjartsýni. Sú bjartsýni átti þó eftir að verða full björt ef marka má það sem á eftir gekk. Ég komst að því að veruleikinn getur verið harður en ekki ósigrandi og það sannaðist kannski þegar á reyndi og þá er oft sagt hið fornkveðna: "Allt fór vel að lokum". Plön um masternám fóru út um þúfur í lok sumars svo það eina sem hægt var að gera var að spýta í lófana og herja á önnur mið. Það var útséð að ég væri að fara frá Íslandsbanka fyrr í sumar og því þurfti ég að byrja að banka á dyr stórfyrirtækja sem smærri fyrirtækja. Það varð úr að KB banki, stærsti banki á Íslandi og áttundi stærsti bankinn á norðurlöndunum bauð mér vinnu sem ég er mjög þakklátur fyrir.
frá 27.2.2008
Fyrri færslur
- Hehe, ég er Travis!!! Which British Band Are You?
- Nú liggja danir í því. Altenatorinn ónýtur í bílnu...
- Mikið var Litla-Brúnsferðin skemmtileg um síðustu ...
- Það er kominn tími til að uppfæra heimskortið! c...
- Á sunnudaginn var alveg ótrúlegur happadagur í líf...
- Það var alveg þvílíkt gaman í útskriftarveislunni ...
- Á P-máli heiti ég Gupuðjópón sem er ekki svo ólíkt...
- Það er ekkert smá mikið sem gengur á á EM. Við Gau...
- Í gær fékk ég formlegt bréf frá Prófessor Páli Skú...
- Við Kristín erum orðnir algjörir DVD fíklar! Það e...
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim