gemill

Guðjón Emilsson heiti ég. Nemi i Kaupmannahofn.

fimmtudagur, apríl 24, 2003

JÆJA!!!!!

ENDURBORINN!!!!!
Ég bregst náttúrulega ekki aðdáendum mínum! Það hefur nú margt gerst svosem. Hóstaði bæði hálsinn úr mér og einnig einn Svía um alla páskana og var það hreint sérdeilis prýðilegt ef ég tek mér orð Þengils nokkurs kynóra í munn. Peter, a.k.a svíinn, kenndi mér fullt, m.a. að elda meira en ég kunni, og svo var hann ekkert að slaka á í drykkjunni allan tímann. Sló mér næstum við!!! Hann hafði sagt mér fyrsta daginn að drykkjuvenjur svíanna væru ekki þær sömu og okkar, þegar við heimsóttum þau á síðasta ári. En því fór fjarri því þeir drukku eins og svínum ber...... nei, afsakið eins og svíum ber.

Bæ ðe vei. Nú eru próf að koma, en tölum ekki meira um það.

Nú er minn bara búinn að gera hosur sínar grænar fyrir hinni yndisþokkafríðu Kristinu, svo vitnað sé í Trökkdræver dauðans mr. Jón Ólaf.
Ég veit að þetta er mikið snilldar kombakk hjá mér en það er víst bezt að þegja um stund!

Góðar stundir


gemill

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim